Gálan á Rokksafni Íslands

Laugardaginn 18. mars kl. 15 kemur Gálan fram á Rokksafni Ísland í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum. 

Tónlistarmaðurinn Júlíus Freyr hefur komið víða við í tónlistinni í
gegnum árin. Hann er trommuleikari í hljómsveitinni Deep Jimi and the Zep Creams og spilar á bassa í Bergrisunum með Bjartmari Guðlaugssyni. Gálan er listamannsnafn sem Júlíus Freyr hefur notað í gegnum tíðina og gefið út þrjár sólóplötur undir því nafni þar sem hann semur öll lög og texta auk þess að spila sjálfur á öll hljóðfærin. Þá vann Júlíus Freyr nokkrar hljómplötur með föður sínum Rúnari Júlíussyni. Júlíus er handhafi Menningarverðlauna Reykjanesbæjar, Súlunnar sem hann fékk fyrir störf sín í þágu tónlistar og menningar.

Júlíus mun leika nokkur lög af sólóferli sínum en honum til aðstoðar verða meðlimir Fauta frá Reykjavík, þeir Guðni Finnsson bassaleikari og Benedikt Brynleifsson trommuleikari.

Scroll to Top