Um safnið: Perlur safnsins verða á sínum stað; Verzlun Þorláks Benediktssonar, Húsin hans Sigga í Báru og Vélasafn Guðna Ingimundarsonar ásamt öðrum fjölbreyttum safnkosti.
Sýningar í hlöðunni: Ljósmyndir úr Suðurnesjabæ eftir Svavar Herbertsson, málverk Braga Einarssonar listmálara af nokkrum þekktum Garðmönnum.
Sýning á ljósmyndum í anddyri safnsins og kynning á ljósmyndasafni byggðasafnsins á Sarpur.is
Viðburður: Tvær af vélum safnsins verða gangsettar: 1948 Red Wing Thorobred KK og 1945 Norman T300, kl. 14 laugardag 18. mars og sunnudag 19. mars.
Listaverk frá Ferskum vindum í anddyri og í portinu við safnið
Opið laugardag og sunnudag frá 11:00 – 17:00