Opnun sýningar Sigrúnar Úlfsdóttur, Divine Love

Listasafn Reykjanesbæjar, Duus safnahúsum

Opnun sýningar Sigrúnar Úlfsdóttur, Divine Love

Listasafn Reykjanesbæjar, opnar sýninguna Divine Love  með verkum eftir hönnuðinn Sigrúnu Úlfsdóttir, í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum, laugardaginn 18. mars, klukkan 14:00 í Bíósal Duus safnahúsa. 

Sigrún lærði myndlist í MHÍ og í framhaldi fatahönnun í París þar sem hún eftir útskrift starfaði fyrir stór tískufyrirtæki, meðal annars Karl Lagerfeld, Hervé Léger, Balmain og Swarovski. Hún hefur síðan unnið við fata-, leður- og skartgripahönnun, bæði fyrir þessi fyrirtæki og fyrir eigið fyrirtæki, Divine Love.

Sýningin er innblásin af Ayurveda heimspeki og er skartgripalínan kennd við orkustöðvarnar í líkama mannsins eða chackras. Nafn línunnar, Bhakti-devine love, er fengið frá hjartastöðinni. Hjartastöðin er mikilvægasta stöðin. Hún er í miðjunni, á milli jarðtengdu stöðvanna og andlegu stöðvanna. Hún er aðsetur ástar og kærleika og er líka tenging okkar við kærleika guðs eða almættisins. Þessi guðlega ást eða devine love, heitir bhakti á sanskrít og er sterkasta orkan í alheiminum. 

Listasafn Reykjanesbæjar, býður alla velkomna á opnun sýningarinnar Divine Love.  

Scroll to Top