Listhugleiðsla í Listasafni Reykjanesbæjar.
Halla Margrét Jóhannesdóttir leikari, rithöfundur, jógakennari og verkefnastjóri miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur leiðir listhugleiðslu, klukkan 13:00, sunnudaginn 27. október.
Hugleitt verður út frá verkinu Birting, eftir listamanninn Bjarna Sigurbjörnsson.
Stólum verður raðað í kring um verkið, þar sem gestir munu hvíla á meðan hugleiðslan fer fram.
Listhugleiðsla er fyrir öll, ókeypis aðgangur.
Við vonum að sem flest sjái sér fært um að mæta.