Rokksafn Íslands er fjölskylduvænt og gagnvirkt safn sem fjallar um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Á safninu má finna tímalínu sögu íslenskrar tónlistar, allt frá árinu 1835 til dagsins í dag. Í sýningunni er fjallað um listamenn á borð við Björk, Hljóma, Of Monsters and Men, Sigur Rós, Kaleo, Stuðmenn, Elly Vilhjálms, Bubba og margra fleiri.
„Gagnvirki plötuspilarinn“, eins og hann er jafnan kallaður, gerir gestum kleift að velja plötu sem leiðir þá í gegnum sögu íslenskra tónlistarmanna á stórum gagnvirkum sýningarvegg.
Gestir geta spreytt sig í hljóðbúri safnsins en þar er hægt að spila á rafgítar, rafbassa, rafmagnstrommusett og einnig er sérstakur söngklefi. Þá er einnig hægt að prófa að setja sig í sæti upptökumanns og prófa að hljóðblanda lagið Little talks með hljómsveitinni Of Monsters and Men. Í bíósal safnsins eru sýndar heimildarmyndir um íslenska tónlist.
Rokksafn Íslands er fyrir alla – bæði þá sem þekkja og elska íslenska tónlist og þá sem vilja kynna sér hana. Börn munu sérstaklega njóta sín í “sound-lab”-inu og fá að fikta í gagnvirkum sýningaratriðum safnsins.
Umsagnir af TripAdvisor:
„Skylduheimsókn fyrir alla tónlistarunnendur!”
„Gagnvirku sýningarnar eru frábærar og safnið sýnir sögu íslenskrar tónlistar á mjög áhugaverðan hátt.”
„Fullkomið safn jafnt fyrir fjölskyldur og tónlistaráhugafólk.”
Nánari upplýsingar á
www.rokksafn.is