Fróðleiksfúsi á náttúrugripasýningu. Nær 100 fjölbreytt dýr í sýningu og gagnvirkt fræðsluforrit fyrir fróðleiksfúsar fjölskyldur á bæði íslensku og pólsku, aðgengilegt á safninu. Náttúrugripasýningin hefur staðið frá 1995 en Fróðleiksfúsi flutti inn fyrir rúmu ári.
Heimskautin heilla – Saga Jean Baptiste Charcot og rannsóknarskips hans Pourquoi-Pas? sem fórst við Íslandsstrendur í september 1936. Sýningin hefur staðið síðan 2007.
Huldir heimar hafsins – Ljós þangálfanna. Fræðandi listræn sýning sem stuðlar að umhverfisvitund barna og fullorðinna. Sýningin fagnar tíu ára afmæli sínu á næsta ári.